Bloggfærslur mánaðarins, október 2016

Fimm góð heilsuráð í lífi og starfi

Fimm góð heilsuráð í lífi og starfi

Heilsan skiptir okkur öll miklu máli því er nauðsynlegt að hlúa vel að líkama og sál. Besta leiðin er að byrja að hreyfa sig og breyta rólega um mataræði, setja sér raunhæf markmið og fylgja þeim eftir.

Hér eru 5 góðir heilsupunktar í lífi og starfi fyrir ykkur kæru lesendur:

1. Setjum okkur og heilsuna í fyrsta sætið! Heilsan skiptir okkur öll máli því er nauðsynlegt að stunda líkamsrækt daglega og hlusta vel á líkamann.

2. Leyfum okkur að dekra við líkamann t.d. fara í nudd, sund eða það sem hentar þér til að ná betri vellíðan.

3. Vellíðan öðlumst við einnig með vaxandi sjálfstrausti sem eykst þegar við ræktum líkama og sál.

4. Verum sátt við sjálfa okkur. Þegar við erum sátt við lífið og tilveruna þá virðast allar dyr opnar og möguleikar lífsins verða endalausir! Njótum þess að vera til og lifa heilbrigðu lífi.

5. Andlegt og líkamlegt jafnvægi skapast með hreyfingu, góðri hvíld og borða hollt fæði.

Gangi þér vel!

Unnur Pálmarsdóttir

Mannauðsráðgjafi

MBA Viðskiptafræði og stjórnun

M.Sc Mannauðsstjórnun nemi 

 

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband