Bananabrauð fyrir jólin
11.12.2018 | 09:09
Bananabrauð er alltaf vinsælt á mínu heimili og hér er holl og fljótleg uppskrift af ljúffengu bananabrauði fyrir jólin.
Bananabrauð Unnar:
3 heilir bananar
2 egg
1 dl haframjöl
2 dl gróft spelt hveiti
1 dl hrásykur
1 tsk lyftiduft
3 tsk kanill
Setjið allt hráefnið saman í skál og hrærið.
Bakist við 180 gráður í 35 mínútur.
Mjög gott að bera bananabrauðið fram með hnetusmjöri, eplum, bláberjum og jarðaberjum.
Njótið!
Jólakveðja,
Unnur Pálmarsdóttir.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)